Nýr vefur Faxaflóahafna opnaður
Fréttir
Gísli Gíslason hafnarstjóri og Björn Ingi Hrafnsson við opnun vefsins. í dag opnaði Björn Ingi Hrafnsson formaður stjórnar Faxaflóahafna nýjan vef Faxaflóahafna.
Nýji vefurinn er knúin áfram af ecWeb og er hönnun alfarið í hönum ecSoftware.
Á vefnum verður hægt að nálgast allar helstu upplýsingar um Faxaflóahafnir sf, skipakomur fundi hafnarstjórnar, tölulegar upplýsingar og helstu mál sem eru á döfinni hverju sinni.
Einnig hefur verið sett á vefinn gátt í veðurupplýsingar á hafnarsvæðunum, þar sem hægt er fylgjast með veðri á hverjum stað fyrir sig og sækja veðurgögn aftur í tímann.
Nýjung er að fundargerðir eru skrifaðar beint inn á vefinn og koma þær strax til birtingar á vefnum. Sóttar eru upplýsingar úr lotus Notes og AS 400, þær upplýsingar speglaðar út á vefinn.
|